
Jana er reynslumikill heilsukokkur sem hefur helgað sér næringaríkum mat og vellíðan. Eftir 15 ár erlendis, þar af 12 ár sem eigandi veitingastaðarins Happ í Lúxemborg, flutti hún aftur heim til Íslands. Hún heldur núna upplifunarviðburði tengda heilsu, mataræði og vellíðan.
Hvað er lykilatriði þegar kemur að því að elda meira af næringarríkum mat?
Gæðahráefni, jafnvægi og einfaldleiki. Það er mikilvægt að velja fersk, heilnæm hráefni, nýta það sem til er heima og einfalda sér hlutina með góðum undirbúningi.

Hvað geta foreldrar gert til að vera góð fyrirmyndir þegar kemur að heilsusamlegu mataræði?
Borða mat með börnunum sínum. Það er mikilvægt að vera fyrirmyndir með því að elda mat og borða saman.
Hvernig getur maður byrjað að bæta heilsu sína með smá breytingum á mataræði?
Byrjaðu smátt og finndu nærngaríkt sem er einnig bragðgott. Það skiptir máli að hafa gaman af ferlinu og prófa nýja hluti í eldhúsinu, eins og að nýta hráefni sem þú átt til staðar og undirbúa máltíðir/millimál fyrirfram.
Hvers vegna ætti maður að bæta kollageni í mataræðið?
Kollagen getur hjálpað til við að bæta útlit húðar, styrkja hár og neglur, auk þess að styðja við liðheilsu. Að bæta kollageni við daglega rútínu, til dæmis í súpur, sósur eða dressingar er næringarrík viðbót við máltíðir.

5 ráð frá Jönu til að bæta heilsuna
1 - Gefðu þér tíma
Gefðu sjálfum þér tíma til að fara í búð, borða og hreyfa sig.
2 - Hreyfðu þig reglulega
Regluleg hreyfing, sama á hvaða formi eða hversu mikið, getur haft mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu.
3 - Vertu fyrirmynd
Verum fyrirmynd barnanna okkar, eldum heima og borðum saman.
4 - Veldu næringarríkan mat
Reyndu að ná jafnvægi í mataræðinu og veldu góð hráefni sem næra líkama og sál.
5 - Prófaðu kollagen
Kollagen getur meðal annars stuðlað að heilbrigði húðar, hári og liðum, svo þú gætir prófað að bæta því í daglega rútínu
JANA & FEEL ICELAND ÞRIGGJA DAGA MATARPRÓGRAM |