Ný vara – Bone Health Therapy

Það eru gleðitíðindi hjá Feel Iceland teyminu þar sem ný vara sem á sér enga líka er komin á markað eftir áralanga þróunarvinnu.

Varan sem ber nafnið Bone Health Therapy byggir á íslensku hugviti og er ólík öðrum fæðubótaefnum fyrir bein þar sem hún inniheldur náttúrlegt efni sem kallast MCHC (Microcrystalline Hydroxyapatite Complex) og er unnið úr íslenskum fiskibeinum

Bone Health Therapy var unnin í samstarfi við feðgana Berg og Þórð hjá nýsköpunarfyrirtækinu North Marine Ingredients ehf. 

Bone Health Therapy inniheldur MCHC sem unnið er á Akranesi úr beinum íslensks þorsks og er án allra aukaefna. Í Bone Health er hlutfall próteina, aðallega kollagens, kalks og fosfórs auk snefilefna nánast það sama og í mannsbeinum. Kalk bætiefni eru oft kalsímkarbónat og innheldur því eingöngu kalk sem nýtist mannslíkamanum. Í okkar tilfelli fylgja öll efni sem beinin okkar eru byggð úr, en þau samanstanda aðallega af kollageni, kalki og fosfór.

Bone Health Therapy eykur beinþéttni með því að draga úr tapi á steinefnum hjá konum eftir breytingarskeið.

– Kollagen fyrir sveigjanleika beina

-Kalk og fosfór fyrir styrk beina

-K2 vítamín fyrir betri upptöku kalks í beinum

-D vítamín fyrir betri upptöku líkamans á kalki

-C vítamín fyrir aukna upptöku og myndun kollagens í beinum

← Eldri færsla

News

RSS
Þeytari

Þeytari

Feel Iceland

Feel Iceland þeytarinn er tilvalinn til notkunar við að blanda kollagenduftinu út í heilta eða kalda drykki.        

Lestu meira
Heilsukokkurinn Kristjana Steingríms

Heilsukokkurinn Kristjana Steingríms

Feel Iceland

  Hver er Jana? ” Ég heiti Kristjana Steingrímsdóttir en alltaf kölluð Jana, ég hef brennandi áhuga á öllu sem tengist heilsu og heilsusamlegu líferni....

Lestu meira