Friðhelgisstefna
MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA
Feel Iceland (Ankra ehf – hér eftir Feel Iceland) hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga. Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa viðskiptavini um hvaða persónuupplýsingar Feel Iceland safnar og með hvaða hætti slíkar persónuupplýsingar eru nýttar.
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg eða nafnlaus teljast ekki persónuupplýsingar.
Þegar viðskiptavinur kaupir vöru í vefverslun Feel Iceland eru gefnar upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar eins og nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Með kaupum í vefverslun Feel Iceland eða skráningu á póstlista Feel Iceland samþykkir viðskiptavinur slíka öflun persónuuupplýsinga. Feel Iceland safnar upplýsingum í þeim megin tilgangi að ganga frá afgreiðslu á pöntun í vefverslun.
Þegar viðskiptavinur skráir sig á póstlista Feel Iceland fer netfang á tiltekinn póstlista. Hægt er að afskrá sig í gegnum tilskilinn hlekk í tölvupósti eða með því að senda póst á hey@feeliceland.com
Feel Iceland fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál. Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila – nema í þeim tilfellum þegar það er nauðsynlegt til að framfylgja þjónustu. Upp geta komið tilvik þar sem Feel Iceland þarf á aðstoð þriðja aðila að halda. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt Feel Iceland og viðskiptavin ákveðna þjónustu. Sem dæmi um það getur verið vinnsla á kortafærslum, þjónusta til að framfylgja heimsendingum, þjónusta við tölvu og hugbúnaðarafyrirtæki sem halda utan um upplýsingar og gögn á vefsíðu. Feel Iceland hefur strangt eftirlit og takmarkar eftir fremsta megni þær persónuupplýsingar sem veittar eru þriðja aðila til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.
Feel Iceland safnar ekki greiðslukortaupplýsingum viðskiptavina sinna. Þær greiðslur sem greiddar eru með kortagreiðslum fara í gegnum örugga greiðslugátt sem hlotið hefur tilsvarandi vottun.
Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem viðskiptavinur gefur Feel Iceland er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að kaupa vörur í vefverslun og í þeim tilgangi að bæta upplifun viðskiptavina á vefsíðu.
Með því að nota vefsíðu og vefverslun Feel Iceland veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og viðurkennir vinnslu og skrá Feel Iceland á persónuupplýsingum sínum.
Cookies
Cookies Necessary for the Functioning of the Store
| Name | Function |
|---|---|
| _ab | Used in connection with access to admin. |
| _secure_session_id | Used in connection with navigation through a storefront. |
| cart | Used in connection with shopping cart. |
| cart_sig | Used in connection with checkout. |
| cart_ts | Used in connection with checkout. |
| checkout_token | Used in connection with checkout. |
| secret | Used in connection with checkout. |
| secure_customer_sig | Used in connection with customer login. |
| storefront_digest | Used in connection with customer login. |
| _shopify_u | Used to facilitate updating customer account information. |
Reporting and Analytics
| Name | Function |
|---|---|
| _tracking_consent | Tracking preferences. |
| _landing_page | Track landing pages |
| _orig_referrer | Track landing pages |
| _s | Shopify analytics. |
| _shopify_fs | Shopify analytics. |
| _shopify_s | Shopify analytics. |
| _shopify_sa_p | Shopify analytics relating to marketing & referrals. |
| _shopify_sa_t | Shopify analytics relating to marketing & referrals. |
| _shopify_y | Shopify analytics. |
| _y | Shopify analytics. |